Rannsóknin var framkvæmd af Centers for Disease Control, CDC, í Atlanta. Hún náði til 2525 barna með meðfædda hjartagalla og 3435 heilbrigðra samanburðarbarna fæddra á árunum 1981 til 89. Tegundir hjartagalla sem rannsakaðar voru voru meðal annars stíflað blóðflæði frá hjartanu til lungnanna og göt milli efri hjartahólfanna.
Niðurstöðurnar sýna að hættan á meðfæddum hjartagöllum eykst um 20 til 70 prósent (mismunandi eftir gerðum hjartagalla) ef móðirin reykir á fyrsta þriðjungi meðgöngu.
„Konur sem reykja og eru að hugsa um að verða barnshafandi verða að hætta að reykja, og það sama á við um konur sem eru þegar barnshafandi og reykja,“ sagði Thomas R. Frieden, talsmaður CDC, í yfirlýsingu.
Hér er tengill á samantekt Barnalækna á rannsókninni:
https://pediatrics.aappublications.org/cgi/content/abstract/peds.2010-1399v1
