Um 160 lönd og svæði taka þátt í Expo 2025, viðburði sem haldinn er á fimm ára fresti á ýmsum stöðum um allan heim.

„Heimssýningin hefst í apríl. Við viljum taka á móti mörgum frá öllum heimshornum og því viljum við gera Osaka að borg þar sem fólki líður vel með reyklausar götur,“ sagði borgarstjórinn Hideyuki Yokoyama, samkvæmt Japan Times.

Japanska ríkisstjórnin á þriðjung í Japan Tobacco, þriðja stærsta tóbaksfyrirtæki heims.

Tóbaksnotkun í Japan hefur minnkað. Hlutfall reykingamanna var 15,7 prósent árið 2023.

Lesa meira